Velkomin á heimasíðuna mína :)
Ég heiti Mikael Ingi H.Davíðsson


ALGJÖR GULLMOLI
Lilypie 2nd Birthday Ticker

Um mig:
Hæhæ Ég kom í heiminn 3. mars kl. 02:51 á Hvidovre Hospital í Kaupmannahöfn. Fæðingin gekk rosa vel. Ég vóg 3.530 gr. og 50 cm. Hraustur strákur og ég lét sko vel í mér heyra.
Mamma mín heitir Ragnheiður Kristjánsdóttir og pabbi minn Davíð Hlíðkvist Ingason. Ég er þeirra fyrsta barn.




Það var svo róandi og gott að fá þessa!
Ný kominn heim.

Litli fiskurinn.

Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.


Brosið
Brosið kostar ekkert en gefur mikið
Brosið auðgar viðtakandann
Án þess að gera gefandann fátækari
Ef til vill varar það bara örlitla stund
En minningin um það getur varað að eilífu
Enginn er svo ríkur að hann getur án þess verið
Og enginn svo fátækur að hann sé þess ekki verður
Brosið skapar hamingju heima og auðveldar viðskipti
Brosið er viðkvæmt vináttutákn
Brosið veitir þeim þreitta hvíld
Og uppörvar þann sem er þunglyndastur
Enginn getur kaypt það fengið það að láni eða stolið því
Ef þú hittir einhverntíma menneskju sem kann ekki lengur að brosa
Þá skaltu af örlæti gefa henni brosið þitt
Því enginn annar þarfnast þess meir
En sá sem ekki lengur getur gefið það öðrum.
Brostu :)

Nafnið mitt merkir:
Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "máni" sem merkir tungl. Mikael erkiengill er af sumum talinn vera fyrsta sköpunarverk guðs.
Erkienglar heita þeir sem hvað mest hafa með mannleg samskipti að gera. Þeir eru einnig best þekkta tegund engla. Fjórir þeirra eru nafngreindir í Biblíunni og er hver þeirra samkvæmt hefð settur yfir einn af himnunum sjö. Þeir sem nefndir eru í Biblíunni eru Gabríel, Rafael, og Mikael.
Mikael er nánast af öllum talinn foringi erkienglanna og herskara himnanna. Undir stjórn hans tókst að vinna bug á Lusifer og fylgjendum hans í mikilli viðureign sem átti sér stað á himnum í árdaga. Hann mun einnig leiða sálirnar sem frelsast munu á efsta degi úr hreinsunareldinum, og leiða þær til himnaríkis. Hann er sagður klæðast skínandi herklæðum og halda á vogarskál til að geta vegið hið góða og hið illa.

Ingi Merkir:
Konungur, - konungborinn
Þú ert gestur nr. 12217